Keppnis- og æfingaferð TFK til Llafranc á Spáni 16. - 27. október 2026
Llafranc er öflugur klúbbur með 19 tennisvöllum, sundlaug og líkamsræktaraðstöðu.
3 Reynslumiklir tennisþjálfarar og 1 líkamsræktarþjálfari verður með hópnum. Egill Sigurðsson þjálfari TFK verður með hópnum úti.
Dagssetning: 16.-27. október 2026
Staðsetning: Llafranc, Costa Brava.
Farastjórn og umsjón: Egill Sigurðsson
Fyrir hverja er ferðin? Ferðin er fyrir þá tennisiðkendur sem eru byrjaðir að spila á venjulegum velli og byrjaðir að keppa í mótum eða hafa metnað til að taka tennisinn á næsta stig.
Börn þurfa að hafa náð 13 ára aldri til að mega fara í ferðina án forráðamanns
Forrráðamenn geta skráð sig í tennis/padel prógram á sama tíma
Flug og samgöngur
Ferð upp á flugvöll KEF: Ekki innifalið, þátttakendur þurfa að koma sér sjálf upp á völl. Mælst er til þess að mæta amk. 2 klst fyrir flug upp á völl.
Flug út: KEF-BCN kl. 08:25-14:45 Flugnúmer FI596
Flug heim: BCN-KEF kl 12:25-16:00 Flugnúmer FI585
Rúta frá BCN flugvelli til gististaðar: Innifalið. Rúta keyrir hópinn á hótel Blaumar Llfranc
Gisting: Hotel Blaumar Llfranc. Fyrir börn yngri en 18 ára sem ferðast án forráðamanna þurfa forráðamenn að undirrita skjal um að barnið megi gista án þeirra.
Innifalið í ferðinni:
Gisting – Hotel Blaumar 11 nætur, morgunverður innifalinn
Matur Hádegis- og kvöldverður á Degust Llafranc (veitingastaður klúbbsins)
Aðgangur Aðgangskort að Club Tennis Llafranc · Concierge þjónusta · Boltar & æfingaefni
Þjálfun 3 sérhæfðir þjálfarar á leirvöllum (3 klst/dag í 10 daga) 1 styrktar þjálfari (2 klst/dag í 10 daga)
Samgöngur Flugvöllur BCN → Hótel Rúta frá hóteli til valla
Verð: 350.000 kr. m.v. 2 spilara í herbergi í 11 nætur
Takmarkað sætapláss:
Skráning: Sendu email á tennis@tennishollin.is með nafn, kennitölu og síma til að tryggja þér sæti í ferðina.
Skjöl
Samþykkisyflirlýsing vegna utanlandsferða barna fyrir undir 18 ára.
Forráðamenn sem vilja koma með:
Hafa samband við Egil farastjóra í 6182915.
Tennisfélag Kópavogs bíður upp á æfingar- og keppnisferðina í samstarfi við ferðaskrifstofuna Spaðaferðir ehf.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur.