Tennisskólinn í sumar

Tennis- og leikjaskólinn fyrir börn 5-8 ára og tennisskólinn fyrir börn 9-13 ára

Í sumar bjóðum við upp á skemmtileg námskeið fyrir alla krakka á aldrinum 5-13 ára. Þessi sumarnámskeið hafa verið mjög vinsæl hjá okkur í gegnum tíðina og margir koma aftur og aftur. Námskeiðið er haldið af Tennishöllinni í samstarfi við Tennisfélag Kópavogs, Tennisfélag Garðabæjar og Tennisfélag Hafnafjarðar.

Markmið námskeiðanna er að kenna undirstöðuatriði tennisíþróttarinnar í bland við skemmtilega bolta-, hlaupa- og tennisleiki auk þess sem spilaður er mini tennis. Ýmislegt annað er til gamans gert svo sem barnaeróbikk með skemmtilegri tónlist, ratleikur, tarzanleikur og fleira. Allir nemendur fá TFK bol eða TFG bol og viðurkenningarskjal í lok námskeiðs. Í lok hvers námskeiðs er haldin pizzuveisla.

Hreyfiþroski og skipulag

Á hverju námskeiði er lögð áhersla á að auka hreyfiþroska barnanna og uppeldislega hollt umhverfi . Miðað er við að um það bil einn leiðbeinandi sé á hver 6 börn. Börnunum er skipt í hópa eftir aldri.  Eftir því sem krakkarnir verða eldri er meira lagt upp úr æfingum og tennisspili þó að ýmsir leikir séu þar líka á dagsskrá, en áhersla er í öllum hópum að hafa gaman af tennis.

Námskeiðið er bæði á innanhúss og utanhúss svo nauðsyn er að klæða sig eftir veðri. Gott er að börnin hafi með sér nesti fyrir nestispásuna, fyrir hádegi er nestispása um 10:20 leitið en eftir hádegi kringum 14:20. Hægt er að kaupa heitan mat í hádeginu á sama stað og námskeiðið er verslað athugið að neðst á listanum er hádegismatur til sölu.

Tímasetning námskeiðanna er eftirfarandi:

Athugið að hægt er að kaupa heitan mat í hádeginu.

1. námskeið 10. júní – 21. júní. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 1.

2. námskeið 24.júní – 5. júlí. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 2.

3. námskeið 8. júlí – 19. júlí. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 3.

4. námskeið 22.júlí – 2. ágúst. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 4.

5. Námskeið 6. ágúst – 16.ágúst. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 5.

ATH. Hægt er að taka fullt námskeið eða stakar vikur innan hvers námskeiðs. Einnig er hægt að vera hálfan daginn eða allan daginn.

Tími og gæsla

Hægt er að taka námskeið sem stendur frá kl. 9:00 – 12:00 eða frá kl. 13:00 – 16:00 eða allan daginn. Börnin geta þó mætt í gæslu kl. 7:45 og verið í gæslu í hádeginu og til kl. 17:15. Gæslan er án endurgjalds.

Verð

Fullt tveggja vikna námskeið kostar 34.900 kr hálfan daginn en 51.900 kr heill dagur.  Verð fyrir eina viku hálfan daginn er 19.900 kr en heilan dag 29.900 kr. Systkinaafsláttur er 10% fyrir öll systkini á sama námskeiði.

Umsjón

Námskeiðin eru í umsjón tennisþjálfaranna:  Arnalds Gunnarssonar íþróttafræðings, Milan Kosicky, Diönu Ivanchevu, Bryndísi Rósu Armesto Nuevo, Ástu Maríu Armesto Nuevo og Sindra Snæs Svanbergssonar.

Skráning er hafin!

Smellið á hlekkinn hér að neðan til að skoða öll námskeið.