Padelskólinn

Nýtt í Padelhöllinni!

Skemmtileg námskeið fyrir alla krakka á aldrinum 9-13 ára. Markmið námskeiðanna er að kenna undirstöðuatriðin í padel og gefa grunn fyrir áhugasama sem vilja fara á padelæfingar í haust. Námskeiðið er einnig með tennis og öðrum leikjum og í bland.

Námskeiðið er bæði á innanhúss og utanhúss svo nauðsyn er að klæða sig eftir veðri. Gott er að börnin hafi með sér nesti fyrir nestispásuna, fyrir hádegi er nestispása um 10:20 leitið en eftir hádegi kringum 14:20. Hægt er að kaupa heitan mat í hádeginu í gegnum Sportabler á sama stað og námskeiðið er verslað athugið að neðst á listanum er hádegismatur til sölu.

Frídagar eru þann 17. júní og frídag verzlunarmanna þann 3. ágúst. Tekið er tillit til þess í verðlagningu.

Tímasetning námskeiðanna er eftirfarandi:

Athugið að neðst á hverri skráningarsíðu er hægt er að kaupa heitan mat í hádeginu.

1. námskeið 9. júní – 19. júní. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 1.

2. námskeið 22. júní – 3. júlí. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 2.

3. námskeið 6. júlí – 17. júlí. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 3.

4. námskeið 20.júlí – 31. júlí. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 4.

5. Námskeið 4. ágúst – 14.ágúst. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 5. 

ATH. Hægt er að taka fullt námskeið eða stakar vikur innan hvers námskeiðs. Einnig er hægt að vera hálfan daginn eða allan daginn.