Íslenska Kvennalandsliðið keppti í Billie Jean King Cup – Heimsmeistaramótinu í liðakeppni á dögunum 18-24 júní. Aðalspilarar liðsins voru þær Anna Soffía Grönhólm og Sofia Sóley Jónasdóttir, iðkendur TFK.
Eftirfarandi 11 þjóðir tóku þátt: Albanía, Armenía, Azerbaídsjan, Kýpur, Finnland, Ísland, Lúxemborg, Svartfjallaland, Norður Makedónía, Moldavía og San Marínó.Mótinu var skipt niður í 2 riðla þar sem öll liðin í hverjum riðli spiluðu gegn hvort öðru í “round robin” kerfi sem leiðir svo í umspil gegn liðum annarra riðla. Kepptir eru tveir einliðaleikir og einn tvíliðaleikur í hverri viðureign best af þremur settum og með forskoti.
Íslenska liðið var dregið í Riðil B ásamt Finnlandi, Norður Makedóníu, Moldavíu, Albaníu, og Azerbaídsjan. Niðurstöður leikjanna má finna á eftirfarandi slóð : https://live.billiejeankingcup.com/en/tie-overview.php/ALL-LIVE