Tennisskólinn í sumar 2025

Í sumar bjóðum við upp á skemmtileg námskeið fyrir alla krakka á aldrinum 5-13 ára. Þessi sumarnámskeið hafa verið mjög vinsæl hjá okkur í gegnum tíðina og margir koma aftur og aftur. Námskeiðið er haldið af Tennishöllinni í samstarfi við Tennisfélag Kópavogs, Tennisfélag Garðabæjar og Tennisfélag Hafnafjarðar.

Markmið námskeiðanna er að kenna undirstöðuatriði tennisíþróttarinnar í bland við skemmtilega bolta-, hlaupa- og tennisleiki auk þess sem spilaður er mini tennis. Ýmislegt annað er til gamans gert svo sem barnaeróbikk með skemmtilegri tónlist, ratleikur, tarzanleikur og fleira. Í lok hvers námskeiðs er haldin pizzuveisla og allir nemendur fá viðurkenningarskjal. Í lok námskeiðanna þann 15. ágúst kl 16:00 verður svo haldin lokahátíð Tennisskólans þar sem öllum þátttakendum sumarsins er boðið og fá þá allir krakkarnir í Tennisskólanum bol frá Tennisfélagi Kópavogs eða Tennisfélagi Garðabæjar.

Hreyfiþroski og skipulag

Á hverju námskeiði er lögð áhersla á að auka hreyfiþroska barnanna og uppeldislega hollt umhverfi . Miðað er við að um það bil einn leiðbeinandi sé á hver 6 börn. Börnunum er skipt í hópa eftir aldri.  Eftir því sem krakkarnir verða eldri er meira lagt upp úr æfingum og tennisspili þó að ýmsir leikir séu þar líka á dagsskrá, en áhersla er í öllum hópum að hafa gaman af tennis.

Námskeiðið er bæði á innanhúss og utanhúss svo nauðsyn er að klæða sig eftir veðri. Gott er að börnin hafi með sér nesti fyrir nestispásuna, fyrir hádegi er nestispása um 10:20 leitið en eftir hádegi kringum 14:20. Hægt er að kaupa heitan mat í hádeginu á sama stað og námskeiðið er verslað athugið að neðst á listanum er hádegismatur til sölu.

Tímasetning námskeiðanna er eftirfarandi:

Athugið að neðst á hverri skráningarsíðu er hægt er að kaupa heitan mat í hádeginu.

1. námskeið 10. júní – 20. júní. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 1.

2. námskeið 23. júní – 4. júlí. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 2.

3. námskeið 7. júlí – 18. júlí. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 3.

4. námskeið 21.júlí – 1. ágúst. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 4.

5. Námskeið 5. ágúst – 15.ágúst. Smellið hér fyrir skráningu á námskeið 5.

ATH. Hægt er að taka fullt námskeið eða stakar vikur innan hvers námskeiðs. Einnig er hægt að vera hálfan daginn eða allan daginn.

Tími og gæsla

Hægt er að taka námskeið sem stendur frá kl. 9:00 – 12:00 eða frá kl. 13:00 – 16:00 eða allan daginn. Börnin geta þó mætt í gæslu kl. 7:45 og verið í gæslu í hádeginu og til kl. 17:15. Gæslan er án endurgjalds.

Verð

Verð fyrir eina viku hálfan daginn er 20.900 kr en heilan dag 31.900 kr. Fullt tveggja vikna námskeið kostar 35.900 kr hálfan daginn en 53.900 kr heill dagur.  Systkinaafsláttur er 10% af námskeiði fyrir öll systkini á sama námskeiði.

Umsjón

Námskeiðin eru í umsjón tennisþjálfaranna:  Arnalds Gunnarssonar íþróttafræðings, Milan Kosicky, Diönu Ivanchevu, Bryndísi Rósu Armesto Nuevo, Ástu Maríu Armesto Nuevo og Sindra Snæs Svanbergssonar.

Skráning er hafin!

Smellið á hlekkinn hér að neðan til að skoða öll námskeið.