Keppnis- og æfingaferð TFK til Albir á Spáni 3-10 júní 2026
Tennisfélag Kópavogs fór síðast í keppnis- og æfingaferð til Albir á sama klúbb haustið 2024. IQL er tennis- og padelklúbbur með 10 tennisvelli og 5 padelvelli auk veitingasölu, sundlaug og líkamsræktaraðstöðu.
Foreldrum gefst einnig kostur á að skrá sig í tennis eða padel prógramm á meðan krakkarnir keppa og æfa. Þetta er því tilvalin fjölskylduferð!
Kynningarfundur: Mánudagurinn 2. mars 2026 kl 18:00 í Tennishöllinni.
Dagssetning: 3.-10. júní 2026
Staðsetning: Albir á Spáni.
Farastjórn og umsjón: Egill Sigurðsson, Jónas Páll Björnsson ásamt fleirum.
Fyrir hverja er ferðin? Ferðin er fyrir þá tennisiðkendur sem eru byrjaðir að spila á venjulegum velli og byrjaðir að keppa í mótum.
Ferðin er fyrir þá padelspilara sem hafa verið að æfa reglulega og vilja taka leikinn á næsta stig.
Börn þurfa að hafa náð 13 ára aldri til að mega fara í ferðina án forráðamanns
Forrráðamenn geta skráð sig í tennis/padel prógram á sama tíma
Flug og samgöngur
Ferð upp á flugvöll KEF: Ekki innifalið, þátttakendur þurfa að koma sér sjálf upp á völl. Mælst er til þess að mæta amk. 2 klst fyrir flug upp á völl.
Flug út: KEF-ALC kl. 09:55 Flugnúmer FI584
Flug heim: ALC-KEF kl 17:35 Flugnúmer FI585
Rúta frá ALC flugvelli til gististaðar: Innifalið. Rúta keyrir hópinn í 40 mín til Albir á hótelið Albir Playa Hotel & Spa.
Gisting: Albir Playa Hotel & Spa, 4* hótel. Fyrir börn yngri en 18 ára sem ferðast án forráðamanna þurfa forráðamenn að undirrita skjal um að barnið megi gista án þeirra.
Innifalið í ferðinni: Flug með check in farangri. Rútuferð til og frá Alicante flugvallar. 4* Hótel með morgunmat á Albir playa hotel & spa. Vatn og orkustykki og hádegisverður í IQL þrisvar sinnum.
Æfingarfyrirkomulag: Æfingar verða í klúbbnum IQL, nánara fyrirkomulag verður auglýst síðar en þjálfarar klúbbsins munu sjá um æfingarnar og skipulag í samráði við íslensku farastjórana.
Keppnisfyrirkomulag: Í vinnslu, auglýst síðar.
Verð: Í vinnslu, tilkynnt á fundi.
Takmarkað sætapláss:
Skráning: Sendu email á tennis@tennishollin.is með nafn, kennitölu og síma til að tryggja þér sæti í ferðina.
Skjöl
Samþykkisyflirlýsing vegna utanlandsferða barna fyrir undir 18 ára.
Tennisfélag Kópavogs bíður upp á æfingar- og keppnisferðina í samstarfi við ferðaskrifstofuna Spaðaferðir ehf.